Persónuverndarstefna
H. Pálsson ehf.
PERSÓNUVERNDARSTEFNA
I.
ALMENNT
Persónuvernd þín skiptir máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort
sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum
sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á
persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu
okkar.
II.
PERSÓNUVERNDARLÖGGJÖF
Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög um persónuvernd og meðferð
persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir
samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Taka lögin meðal annars á vinnslu,
vörslu og miðlun persónuupplýsinga.
III.
ÁBYRGÐ
Fyrirtækið ber ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga
í starfsemi sinni. H. Pálsson ehf., með aðsetur að Gylfaflöt 30, 112 Reykjavík,
er löglegur stjórnandi persónuupplýsinga sem þú veitir fyrirtækinu. Hægt er að
hafa samband við okkur í aðsetri okkar, með tölvupósti á póstfang h@palsson.is og með því að hringja í 577 7777.
IV.
SÖFNUN OG NOTKUN
Samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og, þar sem við á, með þínu samþykki
getum við og þjónustuveitendur okkar (sem gætu komið fram fyrir hönd
fyrirtækisins) safnað persónuupplýsingum um þig:
- um nafn þitt, símanúmer og netfang til að geta svarað fyrirspurnum og
brugðist við óskum þínum, til að svara spurningum þínum og athugasemdum.
- um nafn þitt, kennitölu, símanúmer, heimilisfang, netfang, dulkóðað
númer kreditkorts, bankaupplýsingar, mat á greiðslugetu, vegna sölu á vöru
og þjónustu sem við bjóðum upp á eða höfum milligöngu um.
- um nafn þitt, kennitölu, heimilisfang, tegund, umfang og dagsetningu
viðskipta til að geta uppfyllt skyldu okkar samkvæmt bókhaldslögum.
- um nafn þitt, heimilisfang, símanúmer og netfang, fæðingardag og aldur
með þínu samþykki til að geta veitt þér kost á að taka þátt í könnunum,
kynningarherferðum með verðlaunum, keppnum og öðrum kynningum og eða til
að geta sent þér kynningarefni, tilboð eða sérsniðnar auglýsingar.
- um nafn þitt og netfang með þínu samþykki til að geta gert þér kleift
að nota vef- og samfélagsmiðlasíður okkar,
- myndbandsupptökum af þér í öryggismyndavélakerfi fyrirtækisins.
Tilgangur öryggismyndavélakerfis er einkum öryggis- og eignavarsla, til að
gæta hagsmuna fyrirtækisins, viðskiptavina þess og starfsmanna
- um ferðir þínar í þjónustubifreið með notkun ökurita, svo sem
staðsetningu og hraða.
- upplýsingar kunna að safnast sjálfkrafa s.s. þegar þú heimsækir
heimasíður okkar, t.d. IP-tala þín og upplýsingar um tölvukerfið sem er
notað. Einnig eru skráðar upplýsingar um hvernig þú notar heimasíðu okkar.
Þessum upplýsingum er safnað með notkun vafrakaka (e. Cookies) en nánari
upplýsingar um vefkökur má finna hér neðar (sjá undir Vafrakökur).
V.
MIÐLUN
Við seljum aldrei persónuupplýsingar um þig. Við miðlum aldrei
persónuupplýsingum til þriðja aðila án þess að samþykki þitt fyrir miðluninni
liggi fyrir (sem þér er frjálst að hafna) nema þar sem okkur er það skylt
samkvæmt lögum eða í þeim tilvikum sem talin eru upp í IV. kafla eða í næstu
málsgrein.
Okkur er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila)
sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki okkar í þeim tilgangi að
ljúka við verkefni eða veita þér þjónustu eða vöru sem þú hefur beðið um eða
samþykkt. Okkur er einnig heimilt að deila upplýsingum með vinnsluaðilum þegar
það er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni t.d. við innheimtu á
vanskilakröfu. Við deilum einnig upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með
vinnsluaðilum sem vinna með okkur við gæða- og markaðsstarf. Við afhendum
vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í
framangreindum tilgangi og gerum við þá samning þar sem þeir undirgangast
skyldu um að halda upplýsingum um þig öruggum og nota þær einungis í
framangreindum tilgangi.
Þá er athygli þín vakin á að allt efni sem þú birtir eða deilir á
samfélagsmiðlasíðum okkar eru opinberar upplýsingar. Athygli þín er vakin á að
með því að tengja saman síðureikning þinn og samfélagsmiðlareikninginn þinn
gefur þú okkur leyfi til að deila upplýsingum með veitanda
samfélagsmiðlaþjónustunnar og notkun þeirra upplýsinga sem við deilum stjórnast
af stefnu samfélagsmiðilsins um persónuvernd. Ef þú vilt ekki að
persónuupplýsingum þínum sé deilt með öðrum notendum eða með veitanda
samfélagsmiðlaþjónustunnar, skaltu ekki tengja samfélagsmiðlareikninginn þinn
við síðureikninginn eða deila efni inn á samfélagsmiðla frá síðunni.
VI.
ÞRIÐJU AÐILAR
Persónuverndarstefnan nær ekki til
upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð
á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna
þér persónuverndarstefnu þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna
sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Apple, Google
og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.
VII.
VERNDUN
Við leggjum mikla áherslu á að vernda vel allar persónuupplýsingar og höfum því
yfir að skipa innra eftirlitskerfi sem á að tryggja að ávallt skulu gerðar
viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir.
Við munum tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef upp kemur öryggisbrot er
varðar persónuupplýsingarnar þínar sem hefur í för með sér mikla áhættu fyrir
þig. Með öryggisbroti í framangreindum skilningi er átt við brot á öryggi sem
leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist,
breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.
Athygli þín er þó vakin á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d.
nafni, kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi
t.d. í gegnum, spjallrás eða stjórnstöð.
Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á internetinu er aldrei
fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú
telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.
VIII.
VARÐVEISLA
Fyrirtækið reynir eftir fremsta megni að halda persónuupplýsingum um þig
nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum. Við geymum
persónupplýsingarnar þínar í þann tíma sem er nauðsynlegur til að uppfylla
markmið þessarar stefnu um persónuvernd nema lengri geymslutíma sé krafist eða
hann leyfður skv. lögum. Ef möguleiki er á að persónuupplýsinganna kunni að
vera þörf síðar til að uppfylla lagaskyldur, t.d. gagnvart skattyfirvöldum, eða
til að höfða eða verjast réttarkröfu, munum við taka afrit af hlutaðeigandi
persónuupplýsingum og varðveita þær á öruggu formi eins lengi og nauðsyn ber
til.
IX.
RÉTTINDI ÞÍN
Þú átt rétt á og getur óskað eftir að fyrirtækið veiti þér upplýsingar um þær persónuupplýsingar
sem fyrirtækið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um þig.
Þú átt rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um þig séu leiðréttar
eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess
tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað í.
Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar (þegar það á
við) innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi
annarra gera, þ.m.t. viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi. Þér verður
tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að
verði við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú getur
kvartað til Persónuverndar ef við neitum að afhenda þér ákveðnar upplýsingar.
X.
PERSÓNUVERND BARNA
Persónuupplýsingum um börn yngri en 13 ára er ekki safnað.
BREYTINGAR
Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum.
Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar
á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu fyrirtækisins; www.hpalsson.is.
VAFRAKÖKUR
Vafrakökur (e. cookies) eru smáar
textaskrár sem vefsíður koma fyrir á tölvu þinni, síma eða snjalltæki þegar þú
heimsækir þær. Vafrakökur eru almennt notaðar til að bæta viðmót og
notendaupplifun vefsíðna. Einnig til þess að vefsíður muni mikilvægar
upplýsingar frá fyrri heimsóknum þínum. Vafrakökur eru öruggar, þær innihalda
ekki kóða og geta ekki verið notaðar til komast inn í tölvuna þína.
Af
hverju notum við vafrakökur?
Við notum vafrakökur til mælinga á heimsóknum á heimasíðu okkar. Það þýðir að
mögulega er skráður tími og dagsetning heimsókna á vefinn, IP tölur þeirra sem
heimsækja hann og frá hvaða vefsíðu heimsóknir koma, tegund vafra og
stýrikerfis og hvaða leitarorð notendur nota til að komast á vefinn sem og til
að finna efni innan hans. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi eins
og til dæmis að muna hvað notandi hefur valið í bókunarvél á meðan hann er
tengdur vefsvæðinu, þær kunna einnig að vera notaðar í öryggisskyni. Lotukökur
eyðast þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma.
Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna val eða aðgerðir notanda
á vefsvæði. Engar tilraunir eru gerðar til að tengja heimsókn við
persónugreinanlegar upplýsingar.
HVERNIG
ER HÆGT AÐ EYÐA VAFRAKÖKUM?
Allir vafrar bjóða upp á takmörkun á notkun á vafrakökum, eins er mögulegt að
slökkva á þeim í stillingum vafrans. Mismunandi er eftir vöfrum hvernig þetta
er gert en leiðbeiningar má finna í hjálparvalmöguleika í helstu vöfrum.
Einnig er hægt að eyða þeim vafrakökum sem þegar eru vistaðar. Skrefin við að
eyða vafrakökum eru mismunandi eftir vöfrum en leiðbeiningar um slíkt má finna
í hjálparvalmöguleika í helstu vöfrum. Upplýsingar um hvernig
stilla má vafra má finna á vefsíðu um vafrakökur: allaboutcookies.org