• Epson SureColor R5000

Epson SureColor SC-R5000, resin prentari fyrir skiltagerð

162,6cm / 64", large format prentari með pokakerfi

Epson SureColor SC-R5000 gefur nákvæni og samfeldni í litum, hefur fljótþornandi blek og skilar verkum með rispuþolið yfirborð á margskonar áprentunarefni.
SureColor R5000 er fyrsta kynslóð með resin blek prentari sem Epson kemur með á markaðinn. Prentar á margskonar efni eins og vínyl, borða, textíl, striga, veggfóður og filmu. SC-R5000 sameinar nákvæmni, áreiðanleika og sveigjanleika í efnisvali.  Lyktarlaust vatnsleysanlegt blek sem hentar vel í verk fyrir viðkvæmt umhverfi eins og skóla,sjúkrahús og hótel, svo og útiverk sem krefjast mikillar endingar. SC-R5000 er með pokakerfi og notar 6 blek + Optimiser.

Epson SureColor R5000

  • Vörunúmer: C11CH28301A0
  • Lagerstaða: Sérpöntun

Merki: Epson